Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Lögreglumenn aldrei séð aðra eins tölu á áfengismælinum
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
þriðjudaginn 2. júlí 2019 kl. 11:02

Lögreglumenn aldrei séð aðra eins tölu á áfengismælinum

Tilkynnt var um rásandi aksturslag bifreiðar um hádegibilið fyrr í vikunni og fylgdi tilkynningunni skráningarnúmer ökutækisins. Skömmu síðar stöðvuðu vaskir lögreglumenn för þessarar bifreiðar og höfðu tal af ökumanni.

Ljóst var strax að ökumaður var alls ekki í standi til að aka bifreið og í raun var hann ekki í standi til að vera á fótum. Honum var kynnt að hann væri handtekinn grunaður um ölvun við akstur og var hann beðinn um að blása í áfengismæli og má sjá útkomuna á meðfylgjandi ljósmynd.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Vakthafandi lögreglumenn, sem nokkrir eiga tugi ára að baki í lögreglu, höfðu aldrei séð aðra eins tölu á áfengismælinum og vonandi sjáum við aldrei aftur svona tölu.

Ökumaður þessi á von á ansi langri ökuleyfissviptingu og svimandi hárri sekt.