Fréttir

Lögreglan á hlaupum eftir vímuðum ökuþórum
Laugardagur 27. febrúar 2021 kl. 11:16

Lögreglan á hlaupum eftir vímuðum ökuþórum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni, vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna, tók sprettinn af vettvangi. Lögreglumaður hljóp á eftir honum og var hann handtekinn. Hann var látinn laus eftir sýnatökur og skýrslutöku á lögreglustöð.

Þá þurfti lögregla að hlaupa uppi annan ökumann sem reyndi að stinga af. Hann var grunaður um að hafa ekið bifreið sinni ofan í skurð og verið að reyna að aka henni aftur upp úr honum þegar hann var truflaður við þá iðju. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum og var með meint fíkniefni á sér. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Lögregla veitti svo þriðja ökumanninum eftirför drykklangan spöl þar sem hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Hann hafði ekið á miklum hraða, meðal annars yfir hringtorg sem á vegi hans varð. Hann var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.
Einn ökumaður til viðbótar ók án ökuréttinda. Hann var grunaður um fíkniefnaakstur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024