Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Löggan bjargar gæs með frosinn gogg
Fimmtudagur 19. janúar 2023 kl. 13:05

Löggan bjargar gæs með frosinn gogg

„Við munum eftir frostavetrinum mikla 2023 en þá fundum við þessa öðlingsgæs á vappi. Eitthvað var henni kalt greyinu og var hún með gogginn frosinn lokaðan. Árvökull vegfarandi sem lét okkur vita og lagði til þessa fínu úlpu sem henni var svo pakkað í og færð inn í hlýjuna. Nú kúrir hún á gólfinu hjá okkur og bíður þess að goggurinn þiðni. Hún biður að heilsa öllum og minnir fólk á að klæða sig vel,“ segir í færslu lögreglunnar á Suðurnesjum á fésbókinni um síðustu helgi.

Public deli
Public deli