Fréttir

Lögga á frívakt fann kannabislykt
Þriðjudagur 3. desember 2019 kl. 10:12

Lögga á frívakt fann kannabislykt

Lögreglumaður á Suðurnesjum sem var á frívakt fann mikla kannabislykt berast frá húsnæði í umdæminu þar sem viðkomandi átti leið hjá um helgina. Lögreglumenn fóru á vettvang og við húsleit, að fenginni heimild, fannst kannabisefni í kommóðuskúffu á heimilinu. Húsráðandi viðurkenndi að eiga efnið.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri nafnlausum upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook - síðu lögreglunnar á Suðurnesjum: https://www.facebook.com/lss.abending/

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024