Fréttir

Lögaðilar sæki um frest á greiðslu fasteignagjalda
Mánudagur 30. mars 2020 kl. 14:00

Lögaðilar sæki um frest á greiðslu fasteignagjalda

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti sl. fimmtudag fyrstu aðgerðir til að bregðast við miklum samdrætti í efnahagslífinu í kjölfar Covid19 veirunnar.

Einn liður í þeim aðgerðum er að gefa lögaðilum tækifæri til að sækja um frest á greiðslu fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði í apríl og maí. Umsóknir þurfa að berast á netfangið [email protected]

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bæjarráð samþykkti einnig að senda gjaldfallin fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði ekki í milliinnheimtu.

Þess er vænst að þeir sem geta greitt geri það.