Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Loftrýmisgæsla Bandaríkjamanna að hefjast
Þriðjudagur 6. október 2020 kl. 09:17

Loftrýmisgæsla Bandaríkjamanna að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á næstu dögum með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Allt að 250 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og eistneska flughernum. Flugsveitin kemur til landsins frá Bretlandi með allt að fjórtán F15 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 9. til 16. október ef veður leyfir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og áður auk þess sem hún verður í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.

Fyrstu liðsmenn sveitarinnar komu til landsins í síðustu viku. Strangari ráðstafanir eru gerðar vegna komu sveitarinnar en almenn gildir um ferðamenn sem koma til landsins því auk landamæraskimana fara allir í tveggja vikna vinnusóttkví (B-sóttkví) að lokinni fyrstu skimun.

Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok mánaðarins.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia.