Fréttir

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast
Mánudagur 5. júlí 2021 kl. 10:04

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Rúmlega hundrað liðsmenn bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins í vikunni með fjórar F-15 orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 7. til 14. júlí, með fyrirvara um veðrið. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl bandarísku flugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við Embætti landlæknis og aðra er að sóttvörnum koma hér á landi.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok júlí.