Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Lítil jarðskjálftavirkni en landið rís
Mælitæki Veðurstofu Íslands á Þorbirni. Mynd: Veðurstofa Íslands
Fimmtudagur 30. janúar 2020 kl. 15:12

Lítil jarðskjálftavirkni en landið rís

Lítil jarðskjálftavirkni hefur verið síðan um miðnætti við Grindavík. En mælist landris vestan við Þorbjörn, segir á vef Veðurstofu ÍSlands

„Með auknu eftirliti berast nú fleiri gögn í hús sem gefa skýrari mynd af þróun mála við Þorbjörn. Nýjasta GPS úrvinnslan sýnir áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um 3 cm frá 20. janúar sl. Erfitt er að túlka breytingar útfrá einstaka mælipunktum en með því að skoða meðaltal þéttari mælinga er greinilegt að landrisið er enn í gangi. Þar sem um er að ræða langtíma atburð þarf að fylgjast vel með mælingunum til lengri tíma til að átta sig betur á heildarferli jarðhræringanna,“ segir í athugasemd jarðvísindamanns.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu og að áfram finnist stærstu skjálftarnir í hrinunni í grennd við Grindavík. Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Algengast er að kvikuinnskotavirkni ljúki án eldsumbrota.