Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Lionsmenn færðu Öspinni hálfa milljón
Séð inn í eitt rými Asparinnar.
Föstudagur 13. desember 2019 kl. 07:51

Lionsmenn færðu Öspinni hálfa milljón

Sérdeildin Ösp í Njarðvíkurskóla fékk 500.000 kr. styrk frá Lionsklúbbi Njarðvíkur á dögunum. Styrkinn á að nota við kaup á munum í skynörvunarherbergi og hreyfisal deildarinnar.

Njarðvíkurskóli þakkar Lionsmönnum í Njarðvík kærlega fyrir hlýhug og gjafmildi í garð skólans og eiga nemendur í Ösp sem og nemendur Njarðvíkurskóla eftir að njóta góðs af.

Public deli
Public deli

Sala á happdrættismiðum í árlegu jólahappdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur er hafin. Sölumenn happdrættismiða eru m.a. í Krossmóa og selja miða og þar er aðalavinningurinn, Toyota Aygo, til sýnis. Við upphaf sölunnar veitir Lionsklúbburinn styrki til félagsmála.