Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Lions mælir blóðsykur Suðurnesjamanna
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 15. nóvember 2019 kl. 14:46

Lions mælir blóðsykur Suðurnesjamanna

Næstkomandi helgi mun Lions á Suðurnesjum standa fyrir sinni árlegu blóðsykurmælingu í samvinnu við Lyfju, Krossmóa 4 Reykjanesbæ.

Mælingar verða í Grindavík föstudaginn 15. nóvember frá kl. 13 -16 í Nettó, í Reykjanesbæ verða mælingarnar laugardaginn 16. nóvember í Krossmóa 4 frá kl. 13 – 16 og í  Vogum verða mælingar einnig á laugardaginn frá kl. 13 – 15 í Iðndal 2.

Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.

Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.

„Mælingin er öllum að kostnaðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lions og Lyfju,“ segir í tilkynningu frá Lions.

Public deli
Public deli