Líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fara vaxandi
Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos. Líkanreikningar sýna að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem kom upp í síðasta eldgosi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Út frá greiningu fyrri atburða hafa vísindamenn metið sem svo að þegar jafn mikið magn af kviku hefur safnast undir Svartsengi og kom upp í síðasta eldgosi, aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.
Nýtt hættumat endurspeglar auknar líkur á eldgosi
Veðurstofan hefur uppfært hættumat og gildir það til 11. febrúar, að öllu óbreyttu. Ákveðið hefur verið að breyta hættustig á svæði 4 og 6 í úr „nokkur“ hætta (gult) yfir í „töluverða“ hættu (appelsínugult). Ástæðan fyrir breytingunum er að samkvæmt líkanreikningum hefur magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálagst það magn sem kom upp í síðasta eldgosi.
Samkvæmt veðurspá er von á umhleypingum út vikuna. Sunnan stormur með afgerandi hlýindum, rigningu og súld á sunnan- og vestanverðu landinu þegar líður á vikuna og um helgina. Slæm veðurspá gæti dregið úr næmni mælanetsins og þannig stytt viðbragðstíma vegna eldgoss.
(Smellið á kortið til að stækka)
Möguleiki að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta gos
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur aukist hægt frá goslokum 9.desember 2024 en virknin er enn lítil. Þróunin síðasta árið sýnir að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur farið minnkandi með hverjum atburði. Því er möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos.