Fréttir

Launhækkun til sviðsstjóra Reykjanesbæjar - Ósannindi formanns bæjarráðs
Mánudagur 16. desember 2019 kl. 07:49

Launhækkun til sviðsstjóra Reykjanesbæjar - Ósannindi formanns bæjarráðs

Á síðasta bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar voru bornar upp á mig  rangar sakir af forseta bæjarráðs. Málið varðar launahækkun til sviðstjóra upp á 122 þúsund á mánuði. Mál sem hefur verið gagnrýnt harðlega af bæjarfulltrúa Miðflokksins, verkalýðshreyfingunni ofl. Skal engan undra. Þessar launahækkanir eru alls ekki í takt við það sem er að gerast í samfélaginu og það veit meirihluti; Framsóknar, Samfylkingar og Beinnar leiðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á fundi bæjarstjórnar var sagt að ég hafi samþykkt þessar hækkanir í bæjarráði. Það eru hrein ósannindi og það er staðfest í fundargerð. Undir liðnum kjaramál var formanni bæjarráðs falið að vinna málið áfram í tengslum við almenna kjarasamninga. Það var mín afstaða að ekki yrði farið fram úr lífskjarasamningum. Síðan er greinilegt að formaður bæjarráðs vann málið áfram án aðkomu annarra verkalýðsfélaga og á skjön við lífskjarasamninginn. Á bæjarstjórnarfundi samþykkti ég fundargerð bæjarráðs, þar var kjaramálinu frestað. Ég hef því aldrei skrifað undir hækkun til sviðsstjóra.

Bæjarfulltrúi Miðflokksins, Margrét Þórarinsdóttir flutti breytingartillögu við fjárhagsáætlunina um að afturkalla launahækkun til sviðsstjóra. Meirihlutinn; Framsókn, Samfylking og Bein leið felldu tillöguna.

Við þetta má síðan bæta að ég bókaði á bæjarstjórnarfundi furðu mína á miklum kostnaðarhækkunum til stjórnsýslusviðs bæjarins.

Ég vísa hreinum ósannindum meirihlutans í minn garð til föðurhúsanna og vænti þess að ég verði beðinn afsökunar af formanni bæjarráðs.

Góðar stundir.

Gunnar Felix Rúnarsson,
varabæjarfulltrúi Miðflokksins.