Fréttir

Kristín tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 7. janúar 2020 kl. 08:56

Kristín tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna

Kristín Júlla Kristjánsdóttir hefur verið tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna, Robert Award, fyrir besta smink/gervi í Valhalla. Verðlaunin verða afhent síðar í mánuðinum.

Valhalla er ævintýramynd um víkingabörn og ævintýraför þeirra frá Miðgarði til Valhallar með guðunum Þór og Loka.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í stuttu samtali við Víkurfréttir sagði Kristín tilnefninguna vera algjörlega sturlaða.