Fréttir

Játaði þjófnað úr Fríhöfninni
Miðvikudagur 23. janúar 2019 kl. 08:33

Játaði þjófnað úr Fríhöfninni

Erlendur karlmaður var í gær gripinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með snjallúr og rakspíra sem hann var grunaður um að hafa stolið í fríhöfninni. Verðmæti varningsins nam tæplega 54 þúsund krónum.
 
Í fyrstu þrætti maðurinn fyrir að hafa tekið munina ófrjálsri hendi, en kvaðst hafa keypt þá annars staðar. Hann sá síðan að sér og játaði stuldinn. Sagðist hann sjá verulega eftir öllu saman og lofaði bót og betrun.
 
Þá höfðu lögreglumenn úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum afskipti af flugfarþega sem hafði hagað sér dónalega í flugi og reynt að stela úr vagni sem flugfreyjur seldu varning úr. Maðurnn var ölvaður og ræddu lögreglumenn við hann á varðstofu.
 
Loks var tilkynnt um ölvaðan farþega sem hafði brugðist illa við þegar honum var meinað að fara með flugi til Dublin. Hann var einnig tekinn tali og róaðist hann fljótlega.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024