Fréttir

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg
Sunnudagur 24. maí 2026 kl. 10:07

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg

Upp úr klukkan níu í gærkvöldi hófst jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg, tæplega 10 km vestur af Reykjanestá. Yfir 120 jarðskjálftar hafa mælst síðan þá og var sá stærsti M3.5 að stærð kl. 05:06 nú í morgun. Veðurstofunni hafa ekki hafa borist tilkynningar um að skjálftarnir hafa fundist í byggð.
Ekki mælist órói á svæðinu og  sýna GNSS stöðvar á svæðinu ekki markverðar breytingar í bakgrunni. 

Jarðskjálftahrinur er algengar á flekaskilunum og síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári, vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga. 

Myndin sýnir staðsetningu og stærð jarðskjáfta á Reykjaneshrygg síðustu 12 klukkutímana. 
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar