Fréttir

Isavia setur upp og gefur öfluga loftgæðamæla
Mánudagur 25. október 2021 kl. 07:56

Isavia setur upp og gefur öfluga loftgæðamæla

Isavia hefur í samvinnu við Verkfræðistofuna Vista sett upp þrjá nýja loftgæðamæla á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt voru gefnir og settir upp mælar í Sandgerði og í Garði til að fylgjast vel með loftgæðum íbúa. Staðsetning mælanna í Garði og Sandgerði var valin í samstarfi við Suðurnesjabæ og Umhverfisstofnun til að þétta mælanet stofnunarinnar. Gjöf Isavia er hluti af sjálfbærnistefnu fyrirtækisins.

Mælarnir mæla ýmis efni í andrúmsloftinu sem geta borist frá eldstöðvum, meðal annars brennisteinsvetni, brennisteinsdíoxíð og köfnunarefnisdíoxíð. Auk þess greina mælarnir hitastig, rakastig og loftþrýsting. Um er að ræða öfluga mæla frá breska fyrirtækinu AQMesh sem hefur sérhæft sig í loftgæðamælum og eru mælar frá AQmesh í notkun út um allan heim og hafa þeir t.d. verið notaðir til að mæla brennisteinsdíoxíð frá eldfjallinu Masya í Níkaragva.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Það er okkur mjög mik­il­vægt að geta haft góða yfirsýn á loftgæðum á Kefla­vík­ur­flug­velli og þessir nýju mælar auðvelda okkur þá vinnu. Góð loftvist er mikilvæg okkar starfsfólki, gestum og nærumhverfi flugvallarins. Isavia hefur sett sér öfluga stefnu á sviði sjálfbærni og er þessi fjárfesting hluti af þeirri stefnu okkar. Við höfum átt gott samstarf með Suðurnesjabæ og Umhverfisstofnun við val á staðsetningu mæla í sveitarfélaginu. Fjárfestingin í nýju mælunum mun því einnig skila sér til aukinni nákvæmni í mælingum á Reykjanesi og inn á mælanet Umhverfisstofnunar,” segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

„Við erum mjög ánægð með samstarfið með Isavia við að setja upp loftgæðamæla sem eiga að tryggja góða loftvist handa starfsmönnum Isavia, ferðamönnum og íbúum á Reykjanesi. Tækninni hefur fleygt fram og er núna mun auðveldar að vera með mælingar sem eru sýndar í rauntíma. Við óskum Isavia til hamingju með mælana.“ Heiðar Karlsson, framkvæmdastjóri Vista.

Að loknum prófunum verða mælingarnar gerðar aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar www.loftgaedi.is og hefur þannig almenningur fullan aðgang að mælingunum. Ástand loft­gæða á hverri mælistöð er litamerkt þannig að al­menn­ing­ur á auðvelt með að átta sig á stöðunni. Styrk­ur meng­un­ar­efna á hverri stöð ræður litn­um á viðkom­andi stöð á Íslands­kort­inu.