Fréttir

Isavia segir upp fólki
„Sökudólgar“ í samdrætti í ferðaþjónustu. Wow vél og ónotaðar MAX-8 vélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli. VF-mynd/pket.
Þriðjudagur 28. maí 2019 kl. 12:20

Isavia segir upp fólki

Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og 15 starfsmönnum öðrum býðst lægra starfshlutfall

Í dag tilkynnti Isavia á fundum með starfsmönnum að félagið hafi gripið til uppsagna á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brotthvarfs Wow air. Um er að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.

Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og til viðbótar býðst 15 starfsmönnum lægra starfshlutfall. Áður hafði verið dregið úr sumarráðningum hjá Isavia ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia, þar á meðal til skrifstofustarfa.

Public deli
Public deli

Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs Wow air í mars síðastliðnum. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif. Umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, því er óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða, segir í tilkynningu frá Isavia.