Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Isavia harmar það að WOW air hafi hætt rekstri
Kyrrsett vél WOW air í flugskýli á Keflavíkurflugvelli. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 28. mars 2019 kl. 10:56

Isavia harmar það að WOW air hafi hætt rekstri

Í nótt bárust Isavia fregnir af því að flugvélar WOW air færu ekki frá Bandaríkjunum aftur til Íslands. Í kjölfarið beitti Isavia stöðvunarheimild á grundvelli loftferðalaga á flugvél WOW air, sem staðsett var á Keflavíkurflugvelli, til tryggingar á ógreiddum notendagjöldum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Isavia.
 
„Isavia harmar það að WOW air hafi hætt rekstri enda hefur félagið flutt fjölmarga farþega um Keflavíkurflugvöll síðastliðin sjö ár og verið mikilvægur hlekkur í velgengni Keflavíkurflugvallar og uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni.
 
Það er ljóst að brotthvarf WOW air mun hafa áhrif á rekstur Keflavíkurflugvallar. Isavia mun á næstunni fara yfir hver þau áhrif kunni að verða.
 
Starfsfólk Isavia á Keflavíkurflugvelli mun aðstoða farþega WOW air eftir bestu getu í dag og næstu daga.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024