Fréttir

Isavia æltar að kæra úrskurð héraðsdóms vegna flugvélar
Föstudagur 3. maí 2019 kl. 18:44

Isavia æltar að kæra úrskurð héraðsdóms vegna flugvélar

Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms var Isavia heimilt að stöðva flugvél ALC, sem WOW air hafði til umráða, vegna ógreiddra notendagjalda flugfélagsins. Að mati Isavia er aftur á móti að finna misvísandi umfjöllun í forsendum úrskurðarins um túlkun á efnislegri heimild til beitingar á því ákvæði loftferðalaga sem heimilar stöðvun flugvélar. Umfjöllunin samræmist ekki túlkun ákvæðisins fram að þessu. Þá samræmist hún heldur ekki eldri dómaframkvæmd og dómafordæmum erlendis í samskonar málum, þar með talið í Bretlandi og Kanada. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
 
Lögunum hefur verið breytt í tvígang, árin 2002 og 2006, meðal annars til að mæta því að flugfélög hafa í auknum mæli leigt flugvélar til rekstursins frekar en að eiga þær sjálf. Að mati Isavia er því vilji löggjafans skýr.
 
Fjölmörg flugfélög sem nýta sér þjónustu Keflavíkurflugvallar eiga og hafa til umráða marga tugi eða hundruði flugvéla. Ef að sú forsenda úrskurðarins stendur, að beiting ákvæðisins eigi eingöngu við um hverja flugvél fyrir sig, mun það í grundvallaratriðum raska þeim forsendum sem gjaldtaka félagsins byggir á þegar kemur að innheimtu notendagjalda. Þessu ákvæði er meðal annars ætlað að koma í veg fyrir möguleika á misnotkun.
 
„Verulegir hagsmunir eru tengdir núverandi framkvæmd loftferðalaga. Hún auðveldar flugfélögum að taka ákvörðun um að hefja flug til landsins. Ef breyting verður á þessu gæti okkur til dæmis verið nauðugur sá kostur að óska eftir tryggingu frá þeim flugfélögum sem hyggjast hefja flug til Íslands,“ segir Sveinbjörn Indriðason, starfandi forstjóri Isavia í tilkynningunni.  „Það yrði íþyngjandi fyrir flugfélög og gæti haft neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu. Isavia hefur ákveðið að kæra úrskurðinn til æðra dóms með það að markmiði að fá forsendum hans breytt.“
 
Fyrir liggur krafa eiganda vélarinnar um að fá hana afhenta vegna skulda sem til hafa orðið vegna starfsemi þeirra vélar einnar. Á það getur Isavia ekki fallist enda telur félagið að það samræmist ekki fyrri framkvæmd og skýru orðalagi lagaákvæðisins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024