Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Íbúafundur í Reykjanesbæ um aðgerðir í atvinnumálum kl. 17:30
Fimmtudagur 14. maí 2020 kl. 16:08

Íbúafundur í Reykjanesbæ um aðgerðir í atvinnumálum kl. 17:30

Íbúafundur um aðgerðir í atvinnumálum verður haldinn í Reykjanesbæ í dag, fimmtudaginn 14. maí kl. 17:30. Fundurinn verður sendur út beint í streymi á Facebook-síðu Reykjanesbæjar og á Facebook-síðu Víkurfrétta.

Íbúar geta tekið þátt í fundinum og sent inn spurningar á póstfangið [email protected]

Public deli
Public deli

Starfsfólk Reykjanesbæjar hefur undanfarna daga og vikur verið að kortleggja og greina möguleika á fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu, meðal annars í gegnum þau úrræði sem ríkisstjórnin hefur kynnt. Þau verkefni sem þegar eru á teikniborðinu verða kynnt á íbúafundinum á netinu.

Upptaka af fundinum verður síðan aðgengileg á sömu síðum fyrir þá sem ekki geta fylgst með streyminu beint.