Fréttir

Hjólbarðar á vegi ollu slysi
Laugardagur 9. febrúar 2019 kl. 18:09

Hjólbarðar á vegi ollu slysi

Flytja þurfti einn með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í vikunni þegar hann ók bifreið sinni yfir hjólbarða sem lá á Grindavíkurvegi. Örsök slyssins var sú að tveir hjólbarðar duttu undan vörubifreið sem ekið var eftir veginum og lá annar þeirra á akbrautinni.

Var fjórum bifreiðum ekið yfir hann, þar af tveimur smárútum með samtals 26 farþegum. Skemmdir urðu á öllum bifreiðunum, mismiklar þó. Ökumaðurinn sem flytja þurfti undir læknis hendur var einn í sinni bifreið og var hann með mikinn höfuðverk eftir að loftpúðarnir í henni höfðu sprungið út við höggið.

Þá var lögreglunni á Suðurnesjum tilkynnt um bifreið sem ekið hafði verið á tré í Keflavík. Ekki urðu slys á fólki. Enn fremur urðu nokkur minni háttar umferðaróhöpp í umdæminu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024