Fréttir

Heilsuleikskólinn Skógarás og leikskólinn Holt „eTwinning skóli“ næstu tvö árin
Frá Skógarási á Ásbrú. Á neðri myndinni er myndinni má sjá frá Holti.
Miðvikudagur 18. mars 2020 kl. 11:23

Heilsuleikskólinn Skógarás og leikskólinn Holt „eTwinning skóli“ næstu tvö árin

3Heilsuleikskólinn Skógarás og Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ eru tveir af ellefu „eTwinning“ skólum landsins en nú hefur verið tilkynnt hvaða skólar í Evrópu hljóta viðurkenninguna ‚eTwinning skóli‘ til næstu tveggja ára.

Níu skólar hér á landi munu bera titilinn og eru Heilsuleikskólinn Skógarás og Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ þeirra á meðal. Hinir skólarnir sjö eru Brekkubæjarskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur, Hamraskóli, Leikskólinn Furugrund, Norðlingaskóli, Selásskóli og Setbergsskóli. eTwinning skólar eru nú 11 talsins hér á landi en í fyrra hlutu Hrafnagilsskóli og Verzlunarskóli Íslands sömu viðurkenningu sem er veitt til tveggja ára í senn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Titillinn ‚eTwinning skóli‘ er viðurkenning á öflugu og góðu evrópsku samstarfi í gegnum þátttöku í eTwinning verkefnum. Viðurkenningin er þó ekki síður liður í skólaþróun því eTwinning skólar eflast enn frekar í notkun upplýsingatækni og alþjóðasamstarfi og hafa tækifæri til styrkja starfsþróun kennara og skólastjórnenda og auka alþjóðatengsl skólans enda verða þeir sýnilegri í skólasamfélagi eTwinning, sem fer ört vaxandi en telur nú yfir 200 þúsund skóla og tæplega 800 þúsund kennara.

eTwinning skólar fá jafnframt tækifæri til að mynd tengsl við aðra eTwinning skóla í Evrópu og verða hluti af evrópsku neti eTwinning skóla. Þar að auki hafa eTwinning skólar aðgang að námskeiðum og vinnustofum sem eykur á möguleika og tækifæri til starfsþróunar og endurmenntunar fyrir kennara og skólastjórnendur.

Þess má geta að þær Ingibjörg Lilja Kristjánsdóttir og Katrín Lilja Hraunfjörð í Heilsuleikskólanum Skógarási hlutu verðlaun á Erasmus deginum síðasta haust fyrir verkefnið Eco Tweet: Little Ecologist. Hér má sjá myndband sem gert var að því tilefni: http://bit.ly/skogaras-eco-tweet

Nánari upplýsingar um eTwinning má nálgast á heimasíðu landskrifstofu eTwinning á Íslandi, etwinning.is, og á Evrópuvef eTwinning, etwinning.net.