Halla ráðinn aðstoðarmaður bæjarstjóra
Halldóra G. Jónsdóttir (Halla) hefur verið ráðin í starf aðstoðarmanns bæjarstjóra Reykjanesbæjar.
Halla lauk B.S. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003 og meistaranámi í forystu og stjórnun, með áherslu á verkefnastjórnun, frá Háskólanum á Bifröst árið 2019.
Síðast liðin 8 ár hefur hún starfað sem sérfræðingur í Markaðs- og samskiptadeild Landsbankans en starfaði áður hjá Landsbankanum og Sparisjóðnum í Keflavík.
Halldóra mun hefja störf byrjun september.