Fréttir

Guðmundur Arnar í framboð fyrir Pírata í Suðurkjördæmi
Guðmundur Arnar Guðmundsson.
Mánudagur 15. febrúar 2021 kl. 09:42

Guðmundur Arnar í framboð fyrir Pírata í Suðurkjördæmi

Guðmundur Arnar Guðmundsson, gamalreyndur Pírati og sagnfræðingur búsettur í Reykjanesbæ, bíður sig fram í prófkjör Pírata. Hann situr í stjórn Pírata í Suðurkjördæmi og er ritari Pírata í Reykjanesbæ.

„Ég er reynslubolti þegar kemur að grasrótarstarfi flokksins. Ég hef verið virkur þátttakandi í starfi Pírata á frá upphaf og ávallt haft sérstakan fókus á starfið á Suðurnesjunum. Ég sat í kjördæmaráði Pírata í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningar 2016, var í 4. sæti á lista Pírata í Reykjanesbæ í sveitastjórnakosningunum 2018, kosinn formaður Framkvæmdastjórnar Pírata sama ár og gegndi þeirri stöðu til haustsins 2020.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég brenn fyrir að koma á betri pólitískri menningu á Íslandi og hef óbilandi trú á að lykillinn að því sé grunnstefna Pírata um gagnrýna hugsun, upplýstar ákvarðanir, réttindi borgara og friðhelgi einkalífsins. Án sterks lýðræðis, ábyrgðar kjörinna fulltrúa og gagnsæja stjórnsýslu er lítil von um alvöru lýðræðisframfarir í samfélagi okkar. Píratar eru svarið,“ segir í tilkynningu um framboðið.