Fréttir

Guðbergur gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Fimmtudagur 11. febrúar 2021 kl. 13:51

Guðbergur gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Guðbergur Reynisson hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri sem fer fram 29. maí.

Guðbergur hefur verið ötull baráttumaður í gegnum ýmsa fjölmenna hagsmunahópa á Facebook eins og Stopp hingað og ekki lengra og Örlítinn grenjandi minnihluta. Þar hefur hann beitt sér af krafti fyrir ýmiss baráttumál á Suðurnesjum og fylgt þeim eftir eins og tvöföldun Reykjanesbrautar, bætta heilbrigðisþjónustu og afhendingaröryggi raforku en þó einna helst fyrir uppbyggingu atvinnulífsins, segir í tilkynningu frá stuðningsmönnum Guðbergs.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Guðbergur  er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ og hefur setið í stjórn þess frá 2012 og sem formaður síðan 2016. Hann hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum á vegum flokksins eins og umhverfis- og samgöngunefnd og velferðarnefnd. Þá situr hann í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem ber ábyrgð á öllu innra starfi flokksins og hefur eftirlits- og úrskurðarvald um allar framkvæmdir á hans vegum.  

Guðbergur er formaður ÍRB-Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og hefur komið víða við í íþrótta- og æskuliðsstarfi á svæðinu í gegnum árin t.d. sem fyrrverandi formaður Hestamannafélagsins Mána ,Akstursíþróttafélags Suðurnesja og Akstursíþróttasambands Íslands. Hann er fæddur 1971, kvæntur, fjögurra barna faðir og hefur rekið fyrirtækið Cargoflutningar ehf. síðan árið 2009. 

Aðaáherslumál Guðbergs eru atvinna, samgöngur og heilbrigðismál og sækist hann eftir 3.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 29.maí næstkomandi.