Fréttir

Gerlegt að leggja Suðurnesjalínu 2 í jörð meðfram Reykjanesbraut
Þriðjudagur 18. febrúar 2020 kl. 09:23

Gerlegt að leggja Suðurnesjalínu 2 í jörð meðfram Reykjanesbraut

Fyrir skömmu kom s.k. Verkefnaráð Landsnets saman til fundar, en ráðið var sett á laggirnar á sínum tíma sem vettvangur aukins samráðs milli Landsnets og hinna ýmsu hagsmunaaðila sem hlut eiga að máli. Á síðasta ári var lokið við gerð s.k. frummatsskýrslu, þar sem kynntur var aðalvalkostur Landsnets um að leggja Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu (að mestu leyti) meðfram Suðurnesjalínu 1.

„Sveitarstjórnin í Vogum lýsti sig andsnúna þeim kosti, og lagði til að lagður yrði jarðstrengur meðfram Reykjanesbraut. Til vara var lagt til að strengurinn yrði lagður í jörðu meðfram Suðurnesjalínu 1, reyndist það ekki raunhæfur kostur að leggja strenginn meðfram Reykjanesbraut,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum í vikulegum pistli sem hann skrifar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í pistilinum segir einnig að á fyrrnefndum verkefnaráðsfundi kynnti fulltrúi Vegagerðarinnar sjónarmið stofnunarinnar varðandi þessa lausn, og kom þar fram að gerlegt er að leggja strenginn í jaðar veghelgunarsvæðisins. Við þá aðgerð mætti jafnframt auka öryggi vegarins, þar sem unnt væri að nýta framkvæmdina til að bæta öryggissvæðin meðfram veginum.

„Hér er því komið kjörið tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi, þ.e. að leggja strenginn í jörð ásamt því að bæta umferðaröryggið. Landsnet bendir hins vegar á að þeim beri að fara að fyrirmælum sem fram koma í stefnu stjórnvalda um flutningskerfi raforku, þar sem gengið er út frá því að meginflutningskerfið skuli vera í loftlínum og að ekki sé heimild til að velja dýrari kosti,“ segir Ásgeir.

Bæjarstjórinn segir að Sveitarfélagið Vogar muni á næstunni fylgja þessu máli eftir við stjórnvöld, í þeirri von að unnt sé að finna ásættanlega lausn.