Fréttir

Ganga í hús og bjóða vinnu
Föstudagur 25. október 2019 kl. 14:06

Ganga í hús og bjóða vinnu

Tveir erlendir karlmenn hafa að undanförnu gengið í hús í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og boðið fram vinnu við að steypa bílaplön og fleira. Hafa allmargar tilkynningar borist lögreglu vegna þessa.

Lögreglumenn höfðu uppi á mönnunum og ræddu við þá. Þeim var meðal annars gerð grein fyrir því að þeir mættu ekki starfa hér á landi nema þeir væru með tilskilin leyfi til þess.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024