Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Fyrsta nýsmíðin af þessarri stærðargráðu í rúmlega 50 ára sögu Vísis
Nýr Páll Jónsson GK 7 kom til Grindavíkur í gær. Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
Miðvikudagur 22. janúar 2020 kl. 10:18

Fyrsta nýsmíðin af þessarri stærðargráðu í rúmlega 50 ára sögu Vísis

Nýr Páll Jónsson GK 7 kom til Grindavíkur í gær. Nú eru rúmlega tvö ár liðin frá undirritun um smíðina og stór áfangi fyrir Vísi að fá skipið í heimahöfn. Þetta er fyrsta nýsmíðin af þessarri stærðargráðu í rúmlega 50 ára sögu Vísis.

Þetta er glæsilegt þriggja þilfara nýsmíði, 45 metra á lengd og 10,5 metra á breidd, hannað af íslensku skipahönnunarstofunni Navis í samvinnu við Vísi.

Public deli
Public deli

Skipið er með Mustad Autoline línukerfi frá Ísfell ehf. og er þar með fyrsta íslenska skipið með sjálfvirku rekkakerfi sem léttir á álagi og vinnu um borð.

Vinnslubúnaðarinn, sem mun bæta alla aflameðhöndlun, svo sem blæðingu, kælingu, flokkun og frágang afla í lest er frá Skaginn 3X og er verkefnið að hluta til unnið í samstarfi við Marel.

„Það ríkir mikil tilhlökkun að fá skipið heim og mun það styðja enn betur við stefnu fyrirtækisins um ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði sem leiðir til framleiðslu afurða úr fyrsta flokks hráefni,“ segir á heimasíðu Vísis.

Skipið komið að bryggju í heimahöfn í Grindavík. VF-mynd: Hilmar Bragi