Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Framvísaði tóbaksdós með kókaíni
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
miðvikudaginn 28. ágúst 2019 kl. 08:45

Framvísaði tóbaksdós með kókaíni

Ökumaður bifreiðar sem lögreglan á Suðurnesjum mældi í fyrrinótt á 139 km hraða, þar sem hámarkshraði er 90 km, reyndist vera ölvaður undir stýri samkvæmt því sem áfengismælir sýndi. Annar ökumaður, sem einnig var grunaður um ölvunarakstur, ók ótryggðri bifreið og var ekki í bílbelti. Þriðji ökumaðurinn ók sviptur ökuréttindum. Hann játaði neyslu á kókaíni og framvísaði tóbaksdós með kókaíni í.

Þá hafa á annan tug ökumanna til verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skráningarnúmer voru fjarlægð af sex óskoðuðum eða ótryggðum bifreiðum og fáeinir ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um ölvunar og/ eða fíkniefnaakstur.