Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Flugakademía Keilis opnar starfsstöð á Spáni
Fimmtudagur 19. júlí 2018 kl. 13:30

Flugakademía Keilis opnar starfsstöð á Spáni

Til að mæta auknum áhuga og tryggja að skólinn geti kennt verklegt flugnám allt árið um kring, hefur Flugakademía Keilis opnað starfsstöð fyrir utan Barcelona. Keilir er þannig fyrsti flugskóli landsins til að halda úti verklegu flugnámi í tveimur löndum. Fyrstu nemendur skólans fóru utan fyrr í sumar og una sér vel, enda kjöraðstæður til flugs flesta daga ársins. Að jafnaði verða um ellefu nemendur Keilis í starfsstöðinni í tvo mánuði í senn og er stefnt að því að nemendur skólans fljúgi árlega um 3.000 klukkutíma á Spáni.

Undirbúningur fyrir opnun starfsstöðvar Keilis á Spáni, sem eru staðsettar í bænum Sabadell rétt fyrir utan Barcelona, hefur staðið í nokkurn tíma. Með opnun hennar er skólinn betur settur til að geta boðið upp á hágæða atvinnuflugnám á einungis 16-18 mánuðum. Samkvæmt Snorra Pál Snorrasyni, skólastjóra Flugakademíu Keilis er þetta stórt skref fyrir skólann, enda er með þessu verið að sýna fram á að hægt sé að yfirfæra verklega þjálfun og gæðaferla Keilis á aðrar starfsstöðvar víðsvegar í Evrópu. Þá hafa nemendur möguleika á því að auka færni sína og þekkingu á alþjóðlegum vettvangi sem mikilvægur þáttur í þjálfun flugmanna.



Flugiðnaðurinn er í örum og hröðum vexti á alþjóðavísu og er mikil eftirspurn eftir atvinnuflugmönnum um allan heim. Stytting námstíma til atvinnuflugmannsprófs, líkt og Flugakademía Keilis hefur unnið að, er því mikilvægur áfangi fyrir bæði flugnema og flugiðnaðinn sjálfan. „Flestir nemendur okkar hafa fengið atvinnutilboð áður en þeir hafa lokið námi hjá okkur, bæði frá innlendum og erlendum flugfélögum, þannig að við höfum einsett okkur að gera þeim kleift að komast á vinnumarkaðinn eins fljótt og mögulegt er“ segir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis.

Mikil ásókn í flugnám
Á þriðja hundrað nemendur leggja stund á atvinnuflugnám í Flugakademíu Keilis. Aukin ásókn hefur verið í námið á undanförnum misserum og er fullbókað í bæði samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám.
Vegna aukinna umsvifa festi Flugakademía Keilis kaup á fjórum nýjum DA40 kennsluflugvélum á árinu og hefur skólinn nú til umráða alls fjórtán flugvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum: átta DA40 fjögurra sæta vélar, fimm DA20 tveggja sæta vélar og eina tveggja hreyfja DA42 kennsluvél.
DA40 flugvélar Keilis eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum. Með komu nýju vélanna hefur skólinn yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í Evrópu. Fyrirhugað er að fyrstu tvær vélarnar verði afhentar í mars næstkomandi og þær seinni í lok maí.

Public deli
Public deli

Þá tók Flugakademían nýverið í notkun fullkominn flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans sem hefur aukið verulega við þjálfunarmöguleika atvinnuflugnema við skólann og bætist hann við núverandi Redbird hreyfanlegan flughermi skólans.

Vegna mikillar aðsóknar í flugnám er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst.