Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Fjölmenn útskrift á vorönn FS
Alls útskrifuðust 128 nemendur á vorönn 2021.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 29. maí 2021 kl. 07:56

Fjölmenn útskrift á vorönn FS

Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram föstudaginn 21. maí. Að þessu sinni útskrifuðust 128 nemendur; 102 stúdentar og 20 útskrifuðust af verk- og starfsnámsbrautum. Þá luku 12 nemendur prófi af starfsbraut og 5 af framhaldsskólabraut. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 75 og karlar 53.  Alls komu 92 úr Reykjanesbæ, 17 úr Suðurnesjabæ, 10 úr Grindavík og einn frá Reykjavík, Hafnarfirði, Húsavík og Neskaupstað.

Vegna fjöldatakmarkana gátu gestir ekki sótt útskriftina að þessu sinni og því voru aðeins útskriftarnemendur og starfsfólk skólans viðstatt. Þess í stað var athöfnin send út á vef skólans og á Facebook. Dagskráin var annars með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson, skólameistari, afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari, flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Ingibjörg Birta Jóhannsdóttir, nýstúdent, flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Ragnheiður Gunnarsdóttir, kennari, flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni léku Kristberg Jóhannsson, nýstúdent, og Magnús Már Newman trommudúett og Emilía Sara Ingvadóttir, Eygló Ósk Pálsdóttir og Kristín Þóra Pétursdóttir léku á klarinett.

Public deli
Public deli

Emilía Sara Ingvadóttir, Eygló Ósk Pálsdóttir og Kristín Þóra Pétursdóttir léku á klarinett við upphaf hátíðarinnar.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Að þessu sinni voru veitt fjölmörg verðlaun enda voru tíu útskriftarnemendur með meðaleinkunn yfir 9,0. Kristján Ásmundsson, skólameistari, afhenti námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut María Tinna Hauksdóttir 100.000 krónu styrk en hún var með 9,55 í meðaleinkunn. 

María Tinna Hauksdóttir, dúx vorannar, hlaut fjölda verðlauna, m.a. 100 þúsund króna námsstyrk úr skólasjóði. Hér afhendir Kristján Ásmundsson, skólameistari, henni viðukenningar.

Tíu nemendur voru með yfir níu í meðaleinkunn.

Jórunn Tómasdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir og Sumarrós Sigurðardóttir voru kvaddar á útskriftinni en þær voru að hætta störfum eftir að hafa kennt við skólann um árabil. Sigurlaug Kristinsdóttir, bókari, hættir einnig störfum í sumar eftir áralangt starf. Þeim var öllum þakkað fyrir vel unnin störf í þágu skólans.

Við athöfnina veitti skólameistari Guðlaugu Pálsdóttur, aðstoðarskólameistara, gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja en hún hefur starfað við skólann í 25 ár. Það er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu við þessi tímamót.

Skólameistari afhenti Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara gullmerki FS en hún hefur starfað við skólann í 25 ár. Hún mun taka við skólameistarastarfinu næsta haust þegar Kristján fer í ársleyfi.

Námsstyrkir voru afhentir úr minningarsjóði Gunnars Sveinssonar.

Alls útskrifuðust 102 nemendur sem stúdentar. Hér var húfum lyft.