Fréttir

Festist á hringtorgi í Njarðvík
Mynd úr safni.
Þriðjudagur 26. nóvember 2019 kl. 18:05

Festist á hringtorgi í Njarðvík


Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Ökumaður sem var á ferð eftir Garðvegi í gærkvöld missti stjórn á bifreið sinni í hálku og endaði utan vegar.

Þá var bifreið ekið yfir hringtorg á Njarðarbraut. Hún lenti uppi á grjóti og sat föst á því. Bifreið frá Bílaflutningum var fengin til að losa hana.

Enn fremur stöðvaðist rúta í hringtorginu á Reykjanesbraut við Aðalgötu vegna bilunar. Óku ökumenn út fyrir hringtorgið til að komast fram hjá henni með þeim afleiðingum að þremur bifreiðum var ekið á umferðarskilti og einni þeirra var bakkað á annað ökutæki eftir að hafa klesst á skiltið.

Engin meiðsl urðu á fólki í þessum óhöppum.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024