Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Fellihýsi losnaði aftan úr bifreið og rann á aðra
Mánudagur 6. maí 2019 kl. 10:27

Fellihýsi losnaði aftan úr bifreið og rann á aðra

Umferðaróhapp varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær er fellihýsi losnaði aftan úr bifreið og hafnaði á annarri sem var nærri. Engin slys urðu á fólki.
 
Á föstudag varð umferðarslys þegar bifreið var ekið aftan á aðra á Reykjanesbraut. Fyrrnefnda bifreiðin hafnaði utan vegar á vegriði. Ökumaður hennar var grunaður um ölvunarakstur.
 
Ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var aftan á slasaðist og þurfti að sauma nokkur spor í andlit hans til að loka skurði sem hann hlaut við aftanákeyrsluna.
 
Fleiri umferðaróhöpp hafa orðið á undanförnum dögum, en þau hafa verið minni háttar og engin teljandi slys á fólki.
Public deli
Public deli