Fréttir

Feðgarnir gera það gott á Sandfellinu
Föstudagur 13. mars 2020 kl. 07:27

Feðgarnir gera það gott á Sandfellinu

Eins og búist var við þá hefur veiði hjá bátunum verið mjög góð í mars og nú eru t.d. allir línubátarnir komnir suður sem hafa verið við veiðar austan við land. Síðasti báturinn sem kom suður var Sandfell SU en Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði gerir hann út. 

Þótt Sandfell SU sé í eigu þeirra á Fáskrúðsfirði þá hefur báturinn mjög mikla tengingu til Suðurnesja. Fyrir það fyrsta þá lét Stakkavík ehf. í Grindavík á sínum tíma smíða tvo samskonar báta á Akureyri. Fyrri báturinn fékk nafnið Óli á Stað GK 99 og kom á flot í október 2014. Hann var síðan seldur til Fáskrúðsfjarðar árið 2016 og fékk þá nafnið Sandfell SU. Hinn báturinn sem var í smíðum fyrir Stakkavík ehf. kom síðan á flot í apríl árið 2017 og fékk sá bátur nafnið Óli á Stað GK 99. Bátarnir eru nokkurn veginn svipaðir, nema hvað að nýi Óli á Stað GK er aðeins hærri en Sandfell SU því brúin er ofar á bátnum en á Sandfelli SU, skipaskrárnúmerin hjá bátunum eru líka svipuð 2841 hjá Sandfelli SU og 2842 hjá Óla á Stað GK.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Annað sem tengir Suðurnesin mikið við Sandfell SU er að skipstjórarnir eru feðgar úr Grindavík, þeir Örn Rafnsson og sonur hans Rafn Franklin Arnarson. Þeir skiptast á að vera með bátinn tvær vikur í senn og hefur gengið mjög vel hjá þeim á Sandfelli SU. Voru t.d. aflahæstir allra smábáta á Íslandi árin 2018 og 2019.   

Förum aðeins í togbátanna en mikill fjöldi af þeim hefur verið á veiðum utan við Sandgerði.  Tuttugu og níu metra bátarnir svokölluðu mega veiða upp að þrjár sjómílum en fyrir utan Sandgerði hafa togbátarnir verið komnir á svæði þar sem meðal annars neta- og línubátarnir leggja línu og net. Þetta hefur gengið nokkuð vel en þó lenti línubátur frá Sandgerði í því í febrúar að hann týndi um 3.000 krókum þegar einhver togbátur frá Grundarfirði togaði yfir línuna hans. Skipstjórinn leitaði og reyndi að slægja upp línuna en ekkert fannst. 

Pálína Þórunn GK kom til Sandgerðis um daginn með fullfermi, um 70 tonn, og hefur báturinn því landað um 126 tonnum í tveimur róðrum. Vörður ÞH er með 123 tonn í tveimur, Berglín GK 100 tonn í einum, Sóley Sigurjóns GK 122 tonn í einum. 

Hjá dragnótabátunum hefur veiðin verið góð og er Sigurfari GK hæstur með 44 tonn í fjórum róðrum,  Benni Sæm GK 43,7 tonn í fjórum, Siggi Bjarna GK 34 tonn í fjórum, Ísey EA 28 tonn í fjórum og Aðalbjörg RE níu tonn í tveimur. Nýr bátur hóf veiðar á dragnótamiðunum við Hafnarbergið og er það Finnbjörn ÍS frá Ísafirði. Þessi bátur er mjög vel þekktur á Suðurnesjum, sérstaklega í Grindavík en báturinn var gerður út þaðan í tæp 30 ár og hét þá Farsæll GK. Mun Finnbjörn ÍS róa frá Sandgerði í það minnsta fram til 1. apríl og leggur upp hjá fiskverkun í Keflavík. Mikið er búið að breyta bátnum frá því hann hét Farsæll GK og allar þær breytingar voru framkvæmdar hjá skipasmíðastöð Njarðvíkur, útlitslega séð munar mestu um að báturinn var breikkaður að aftan og hækkaður þar aðeins upp og fékkst þannig aðeins meira flot í bátinn að aftan.

Gísli Reynisson
aflafrettir.is