Fréttir

Eysteinn Þór Kristinsson nýr skólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur
Þriðjudagur 8. júní 2021 kl. 10:14

Eysteinn Þór Kristinsson nýr skólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur

Eysteinn Þór Kristinsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar. Eysteinn býr yfir víðtækri og yfirgripsmikilli kennslu- og stjórnunarreynslu. Hann hefur starfað hjá Nesskóla í Neskaupstað í rúm 30 ár og hefur hann gegnt stöðu skólastjóra síðustu þrjú árin. Árin áður var hann starfandi aðstoðarskólastjóri, deildarstjóri og kennari hjá skólanum

Eysteinn er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands ásamt því að hafa lokið B.Ed gráðu frá Háskóla Íslands og Diplómu í stjórnun menntastofnana frá sama skóla.

Public deli
Public deli

Eysteinn Þór mun hefja störf við skólann hinn 1. ágúst nk.