Fréttir

Eyddu handsprengju sem talin var virk
Þriðjudagur 1. október 2019 kl. 12:40

Eyddu handsprengju sem talin var virk

Borgari hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum um helgina sl. og kvaðst hafa gengið fram á handsprengju á Patterson-svæðinu svonefnda við Ásbrú. Um er að ræða gamalt æfingasvæði sem bandaríski herinn notaði á sínum tíma.

Lögregla hafði samband við sprengjusérfræðinga og mættu starfsmenn Landhelgisgæslunnar til leiks og eyddu sprengjunni sem talin var vera virk.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024