Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ellefu smit á Suðurnesjum í gær
Miðvikudagur 17. nóvember 2021 kl. 13:15

Ellefu smit á Suðurnesjum í gær

Ellefu greindust smitaðir af kórónuveirunni úr sýnatökum gærdagsins á Suðurnesjum. Alls voru tekin 314 sýni. Daginn áður höfðu 25 smit greinst.

Nú er í gangi átak í örvunarbólusetningum á Suðurnesjum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er að boða þá einstaklinga í örvunarbólusetningu þar sem liðnir eru sex mánuðir eða lengra frá seinni bólusetningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við biðjum fólk vinsamlega um að virða tímasetningar á boðunum til að koma í veg fyrir langar biðraðir og örtröð í bílastæði. Tímasetningarnar miða út frá aðstöðunni sem við höfum til að taka á móti fólki. Við viljum endilega bólusetja sem flesta,“ segir Andrea Klara Hauksdóttir, hjúkrunardeildarstjóri heilsugæslu hjá HSS.

„Þeir sem hafa smitast af Covid-19 eftir tvær grunnbólusetningar eiga ekki að fá örvunarbólusetningu eins og er og viljum við biðja þá einstaklinga að hunsa boðin eða hafa samband á [email protected],“ segir Andrea jafnframt.

Ef fólk hefur smitast af Covid-19 eftir fyrri bólusetningu eða án bólusetningar þá þurfa að líða þrír mánuðir áður en viðkomandi getur fengið næsta skammt.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband á [email protected] og þeim póstum verður svarað við fyrsta tækifæri.