Fréttir

Ekki nauðsynlegt að grípa til aðgerða í Reykjanesbæ
Föstudagur 31. janúar 2020 kl. 09:48

Ekki nauðsynlegt að grípa til aðgerða í Reykjanesbæ

„Meðan enn er óljóst hver framhald þeirra umbrota verður sem hafa verið greind við Þorbjarnarfell er ekki talið nauðsynlegt að grípa til sérstakra aðgerða í Reykjanesbæ,“ segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum en mjög vel verður fylgst með stöðu mála.

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi. Var það gert hinn 26. janúar sl.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á fundi sem haldinn var í gær með bæjarstjóra, slökkviliðsstjóra, lögreglustjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs Reykjanesbæjar var farið yfir stöðuna sem sem fylgir óvissustigi vegna landriss við Þorbjörn og þau áhrif sem kunna að fylgja því í Reykjanesbæ.

Hópurinn fylgist vel með þeim upplýsingum sem berast reglulega frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, en þær byggjast á mati vísindaráðs almannavarna.

Ríkislögreglustjóri hefur einnig lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV).

Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi. Sóttvarnalæknir leggur mikla áherslu á smitgát, en handþvottur er mjög mikilvægur til þess að forðast smit er.

Fylgst er vel með þróun mála og er almenningi bent á að fylgjast með henni í báðum tilvikum á vef Almannavarna: https://www.almannavarnir.is/