Fréttir

D-listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi samþykktur samhljóða
Mánudagur 14. júní 2021 kl. 09:50

D-listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi samþykktur samhljóða

D-listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var samþykktur samhljóða á fjölmennum fundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem haldinn var í Grindavík 12. júní sl. Á annað hundrað manns tóku þátt í fundinum og var góð stemning og baráttuandi í fólki fyrir komandi þingkosningar, segir í tilkynningu.

Frá því prófkjör flokksins fór fram 29. maí sl. hefur kjörnefnd verið að störfum við að ganga frá heildartillögu að framboðslista. Listinn byggir á þeirri heildartillögu. Í kjörnefnd eiga sæti 21 fulltrúi.

Listinn er svohljóðandi í heild:
1. Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, Hveragerði
2. Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, Grindavík
3. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Reykjanesbæ
4. Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, Svf. Árborg
5. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, meistaranemi í lögfræði við HÍ, Eyjafjöllum
6. Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum
7. Eva Björk Harðardóttir, oddviti, Skaftárhreppi
8. Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
9. Stefanía Anna Sigurjónsdóttir, þroskaþjálfi, Höfn í Hornafirði
10. Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, uppeldisfræðingur, flugfreyja og matarbloggari, Reykjanesbæ
11. Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, Suðurnesjabæ
12. Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögfræðingur, Vestmannaeyjum
13. Grétar Ingi Erlendsson, markaðs- og sölustjóri og bæjarfulltrúi í Svf. Ölfusi, Þorlákshöfn
14. Birgitta Hrund Ramsay Káradóttir, skjalastjóri og bæjarfulltrúi, Grindavík
15. Sveinn Ægir Birgisson, kennaranemi og varabæjarfulltrúi í Svf. Árborg, Selfossi
16. Hulda Gústafsdóttir, hestakona og framkvæmdastjóri Hestvits ehf., Rangárþingi ytra
17. Baldur Þórir Guðmundsson, viðskiptafræðingur, Keflavík
18. Jónas Logi Ómarsson, matreiðslumeistari og yfirbryti á Herjólfi, Vestmannaeyjum
19. Alda Agnes Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Einhamars Seafood, Grindavík
20. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, Rangárþingi eystra

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024