Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Boeing 737 MAX kyrrsettar til loka október
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
miðvikudaginn 10. júlí 2019 kl. 11:53

Boeing 737 MAX kyrrsettar til loka október

Útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla muni vara lengur en reiknað hafði verið með og hefur Icelandair því uppfært flugáætlun sína til loka október nk. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar.

Eins og fram hefur komið bætti félagið fimm leiguvélum við flota sinn í sumar til að lágmarka áhrif kyrrsetningarinnar á farþega. Leigusamningar tveggja þessara véla renna út í lok ágúst en þrjár verða í rekstri hjá félaginu út september. Unnið er að því að útfæra framlengingu leigusamnings einnar vélar út október.

Public deli
Public deli

Við þessar breytingar dregst sætaframboð félagsins á tímabilinu 16. september til 26. október saman um 4% frá því sem áður var áætlað. Eins og fram hefur komið hefur félagið lagt megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og hefur félagið aldrei flutt fleiri farþega til Íslands en það sem af er sumri, eða 354 þúsund farþega í maí og júní samanborið við 257 þúsund á sama tímabili í fyrra. Þá eru bókanir á markaðinum til Íslands á tímabilinu júlí til október rúmlega 20% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Vinna varðandi þessar breytingar mun hefjast á næstu dögum og munu starfsmenn Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.

Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru enn óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda, segir í tilkynningunni.