Fréttir

Bláa Lónið freistar þess að verja 600 störf
Fimmtudagur 26. mars 2020 kl. 17:59

Bláa Lónið freistar þess að verja 600 störf

— Segja upp 164 starfsmönnum

Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi og fullkominnar óvissu um framhaldið er Bláa Lóninu það óhjákvæmilegt að segja upp 164 starfsmönnum en 764 starfsmenn störfuðu hjá fyrirtækinu í febrúar sl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þannig er verið að bregðast við fordæmalausum aðstæðum og gjörbreyttu rekstarumhverfi fyrirtækisins, en eins og þegar hefur verið tilkynnt, hefur félagið nú lokað öllum starfstöðvum sínum til a.m.k. loka aprílmánaðar næstkomandi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Með þessum aðgerðum og tímabundnum úrræðum stjórnvalda um hlutastörf verður þess freistað að verja störf þeirra 600 starfsmanna sem munu starfa hjá fyrirtækinu eftir þessar aðgerðir.

Áætlað er að rúmlega 400 starfsmönnum verði boðið upp á að nýta sér hin tímabundnu úrræði enda verður starfsemi félagsins í algjöru lágmarki á þeim tíma sem þau eru í boði.