Fréttir

Bjóða Seyðfirðingum gistingu yfir jól og áramót
Föstudagur 18. desember 2020 kl. 17:49

Bjóða Seyðfirðingum gistingu yfir jól og áramót

Hótel Keflavík hefur ákveðið að leggja fjölskyldum á Seyðisfirði lið og bjóða þeim sem vilja vera hjá vinum og vandamönnum hér syðra um jól og áramót að gista frítt á Hótel Keflavík ef þau þurfa á því að halda.

„Við erum harmi slegin yfir fréttum dagsins um viðburðina á Seyðisfirði,“ segir í færslu á Facebook sem Hótel Keflavík birti nú síðdegis. Seyðfirðingar sem vilja þiggja gistingu yfir jól eða áramót eru vinsamlegast hvattir til að hafa samband við móttöku Hótels Keflavíkur í síma 4207000 eða á [email protected]

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024