Fréttir

Bærinn greiðir verktaka 43 milljónir í bætur
Frá framkvæmdum við Pósthússtræti 5 í Reykjanesbæ.
Fimmtudagur 11. apríl 2019 kl. 06:00

Bærinn greiðir verktaka 43 milljónir í bætur

-Bæjarfulltrúi Miðflokksins ekki sáttur við skipulagsvinnu í Reykjanesbæ

Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ, segir það óskiljanlegt að horfa upp á hvernig skipulagsvinnu var háttað varðandi fyrirhugaðar byggingar við Pósthússtræti 5 til 9 í Reykjanesbæ. „Nú hefur samkomulag náðst við byggingaraðilann og bærinn skuldbindur sig til að greiða honum 43 milljónir í skaðabætur,“ segir Margrét í bókun um málið á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
„Ljóst er að þetta er búið að vera eitt allsherjar klúður. Auðvitað vekur þetta mál upp fleiri spurningar eins og hvort það sé eðlilegt að hægt sé að fá úthlutaða verðmæta lóð og draga það svo í mörg ár að hefja framkvæmdir. Þessi bygging mun hafa áhrif á útsýnið frá Pósthússtræti 3. Mjög margir hafa einmitt keypt sér íbúðir í þessu húsi vegna útsýnisins. Það eru verðmæti í útsýni þegar um fasteignir er að ræða. Þarna var verið að ganga á verðmæti fólks,“ segir Margrét í bókuninni.

„Með þessari nýbyggingu að Pósthússtræti 5, svo nálægt Pósthússtræti 3, er verið að draga úr gæðum og verið að rýra verðgildi eigna í Pósthússtræti 3. Þetta mál birtist mér þannig að það hafi verið laumast við að hliðra þessu húsi til á byggingarreit, verktakanum í hag en íbúum í næsta húsi í óhag. Fyrir það eiga íbúarnir í næsta húsi ekki að þurfa að gjalda. Nú hefur samkomulag náðst við byggingaraðilann og bærinn skuldbindur sig til að greiða honum 43 milljónir í skaðabætur. Þetta er nú meira ruglið. Bæinn munar svo sannarlega um 43 milljónir, hver ætlar að axla þá ábyrgð? Ég spyr. Var búið að gera ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun? Ég óska hér með eftir því að fá minnisblað um það hver heildarkostnaður bæjarins er á þessu klúðri,“ segir Margrét í bókuninni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024