Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Bænastund í Grindavíkurkirkju fyrir Sólrúnu Öldu
Föstudagur 25. október 2019 kl. 15:54

Bænastund í Grindavíkurkirkju fyrir Sólrúnu Öldu

Bænastund verður haldin í Grindavíkurkirkju í kvöld, föstudagskvöld kl. 20:30, fyrir Sólrúnu Öldu Waldorff. Hún slasaðist alvarlega aðfaranótt miðvikudags í bruna í Reykjavík.

„Grindvíkingurinn Sólrún Alda Waldorff slasaðist alvarlega aðfaranótt miðvikudags sl. þegar henni var bjargað út úr brennandi kjallaraíbúð í Mávahlíðinni í Reykjavík. Vinkonur Sólrúnar hér í Grindavík ætla að halda bænastund fyrir hana í Grindavíkurkirkju í kvöld klukkan 20:30 en Sólrún Alda berst fyrir lífi sínu og hefur nú verið flutt erlendis á sjúkrahús til frekari aðhlynningar,“ segir á vef Grindavíkurbæjar.

Public deli
Public deli

 
Vinkonur Sólrúnar hafa látið skilaboð berast á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem þær hvetja til þess að sameinast verði í Grindavíkurkirkju og bæði Sólrúnu og fjölskyldu sendur styrkur á erfiðum tíma. 

Þórunn Alda Gylfadóttir, móðir Sólrúnar Öldu,segir í samtali við vef Grindavíkurbæjar að ástandið sé mjög alvarlegt. Sólrún væri í lífshættu og tekin væri ein klukkustund í einu. Allar bænir myndu hjálpa.