Fréttir

Ánægja í Suðurnesjabæ
Miðvikudagur 26. febrúar 2020 kl. 09:42

Ánægja í Suðurnesjabæ

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar lýsir ánægju með niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2019 og í byrjun árs 2020 á meðal tuttugu stærstu sveitarfélaga landsins. Suðurnesjabær raðar sér með fremstu sveitarfélögunum og er í meðaltali eða yfir meðaltali í flestum þáttum sem mældir eru.

Þá raðast Suðurnesjabær númer tvö í könnuninni þar sem ánægja með þjónustu grunnskóla er mæld og einnig þegar spurt er hvernig starfsfólk sveitarfélagsins leysir úr erindi eða erindum fólks.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Suðurnesjabær raðast númer þrjú, með 4,3 stig af fimm, þar sem spurt er um hversu ánægt eða óánægt fólk er með sveitarfélagið sem stað til að búa á.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að vinna áfram með niðurstöður með það að leiðarljósi að bæta þjónustu Suðurnesjabæjar.

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? - HÉR ERU VÍKURFRÉTTIR!