Aðsent

Verndum okkar viðkvæmustu hópa
Sunnudagur 29. mars 2020 kl. 17:53

Verndum okkar viðkvæmustu hópa

Árið 2020 byrjar með því að minna okkur allhressilega á það hvað lífið og náttúran geta verið miskunnarlaus þrátt fyrir alla sína fegurð. Óveður og óteljandi lægðir hafa leikið landsmenn grátt, sérstaklega þá sem búa á landsbyggðinni. Snjóflóð, rafmagnsleysi, jarðskjálftar, eldgosaviðvaranir og það nýjasta, veiran Covid-19 sem er að hafa alveg gríðarleg áhrif. Veira sem heldur heiminum og okkar litla landi í heljargreipum og hefur margt breyst í daglegu lífi á stuttum tíma sem hefur snert okkur öll á einn eða annan hátt. Óvissan þykir mér verst, hlusta á spár og getgátur og vona það besta. Að finna fyrir óöryggi, vera varari um sig og sína eru eðlislæg viðbrögð og það getur haft áhrif á orku og jafnvægi sem eru lykilþættir að heilbrigði og lífshamingju.

Hvað hef ég verið að gera og hvað get ég gert er mér ofarlega í huga. Það er auðvitað einstaklingsbundið og mín gildi og reynsla vísa mér veginn með góðri blöndu af æðruleysi og auðmýkt. Við ættum að vera alltaf vel upplýst, sýna ábyrgð, hlusta á fólkið í brúnni, fara eftir tilmælum og leiðbeiningum þessa frábæra fagfólks sem er að gera sitt besta í að halda utan um okkur þessa dagana og vikurnar. Okkar skylda er að hlúa að, vernda okkar viðkvæmustu hópa sem þurfa á styrkri hönd að halda og takmarka álagið á þau eftir fremsta megni. Nú eru margir í sóttkví, skólastarf skert, íþróttum og tómstundum haldið í lágmarki. Það gerir það að verkum að frítími margra er meiri, aukin samvera fjölskyldna sem felur í sér ný tækifæri, tækifæri til að treysta og styrkja böndin, kynnast sjálfum sér, vinna í sjálfum sér og gefa af sér til annarra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hreyfing og útivist hreinsa hugann, gefa orku og núllstillingu sem gefur jafnvægið sem við þurfum. Ég hvet okkur öll til að fara í göngutúra daglega og anda að okkur fersku lofti. Við þurfum á hvert öðru að halda og það er mikilvægt að hlusta á raddir allra í okkar lífi, við erum ólík og líðan fólks mismunandi eftir aðstæðum og baklandi. Tölum saman, hughreystum og hvetjum hvert annað áfram, hlúum að börnunum okkar, fjölskyldu, vinum og vandamönnum.

Gerum ekki lítið úr ástandinu, áhyggjum, hræðslu og kvíða annarra heldur aðstoðum þau upp brekkuna, minnum þau og okkur sjálf á það sem skiptir mestu máli. Höldum áfram að lifa lífinu og höldum okkar rútínu eins mikið og við getum að teknu tilliti til síbreytilegra aðstæðna. Við þurfum að standa saman, skapa sátt og virðingu en ekki mismunun og sundrung sem allir tapa á. Þrátt fyrir allt sem má betur gera er ég stolt af landi og þjóð og vonandi erum við það flest. Ég vil trúa á hið góða í fólki og að þeir sem stýra þessu landi vilji og ætli sér að gera það af hjarta og heilindum, þvert á flokka. Við erum þjóð sem er rík af svo mörgu. Góð andleg og líkamlega heilsa er lykillinn að góðu lífi, jafnvægi og hamingju. Ef manni líður vel og er í góðu jafnvægi þá er maður betur í stakk búin að gefa af sér til annarra og senda jákvæða strauma útí kosmósinn.

Faðmlög, nánd og snerting skiptir mig miklu máli enda er ég mikill knúsari eins og þeir vita sem þekkja mig vel. Ég hlakka til að geta útdeilt knúsum aftur sem allra fyrst enda kominn með dass af fráhvarfseinkennum. Við öll erum mikið sterkari, þrautseigari og orkumeiri en við höldum og höfum þann hæfileika að geta lært og blómstrað í erfiðum og krefjandi aðstæðum. Við erum með ólík spil á hendi en við erum ekki ein, sjáum til þess að enginn upplifi sig einan á báti. Samfélag okkar erum við öll, ég hef trú á því og okkur öllum og ber þá von í brjósti að samfélagið þroskist og framtíðin verði bjartari þegar við komumst yfir þetta ástand sem nú ríkir útum allan heim.

Díana Hilmarsdóttir
forstöðumaður
Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja