Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Aðsent

Þungarokk og ísaðir þorskar í Noregi
Sunnudagur 7. júlí 2019 kl. 06:00

Þungarokk og ísaðir þorskar í Noregi

Þó svo að Ísland sé ekki stórt land, þá engu að síður er Ísland næst stærsta fiskveiðiþjóðin í Evrópu. Einungis Noregur er stærri fiskveiðiþjóð og í því landi er óhemju mikið af allskonar bátum af öllum stærðum sem stunda fiskveiðar.

Í Noregi hafa margir báta sem hafa verið smíðaðir á Íslandi verið seldir og er plastsmiðjan Trefjar í Hafnarfirði mjög öflug í því að smíða plastbáta og selja þangað. Bátanna frá Trefjum þekkjum við Suðurnesjamenn mjög vel undir nafninu Cleopatra og er t.d. Von GK, Gísli Súrsson GK og Vésteinn GK bátar sem eru smíðaðir þar.

Public deli
Public deli

Til Noregs hafa líka verið seldir eldri bátar og nýjasti báturinn sem var seldur þangað á sér mikla sögu á Suðurnesjum. Í Grindavík var bátur gerður út í 22 ár sem hét Kópur GK 175 og var síðan seldur til Tálknafjarðar og hét þar Kópur BA 175. Báturinn var seldur fyrir nokkrum árum til Noregs til útgerðar sem heitir Esköy og er þetta fyrirtæki í eigu bræðranna Hrafns og Helga Sigvaldssona ásamt Bjarna Sigurðssyni. Þeir keyptu bátinn Kóp BA og gáfu honum nafnið Valdimar H. Báturinn hefur stundað veiðar með beitningavél í Norður Noregi og ísar aflann um borð, sem er ólíkt öðrum stórum línubátum í Noregi, því þeir hausa flestir fiskinn og heilfrysta svo um borð.  

Þegar þetta er skrifað þá er Valdimar H í 9. sæti yfir allra línubáta í Noregi og er aflahæsti línubáturinn í Noregi sem veiðir í ís og frystir ekki aflann um borð. Núna er báturinn á risasiglingu því fimm manna áhöfn er að sigla bátnum um 2650 km leið frá Norður Noregi og alla leið til Gdansk í Póllandi, þar sem að báturinn er að fara í slipp.

Afhvejru byrja ég þennan pistil á Noregi? Jú, kannski af því að ég sjálfur skellti mér til Noregs núna um helgina að hlusta á þungarokkstónlist í þrjá daga. Já, maður keyrir rútur, skrifar á aflafrettir, gefur út aflatölurrit, skrifar þessa pistla og hlustar á mikið þungarokk.  

Og talandi um skrif, þá er pistillinn sem ég skrifaði fyrir 3 vikum síðan um slippinn í Njarðvík búinn að vekja miklu meiri athygli en ég nokkurn tíman gerði mér grein fyrir.  Síðasti pistill fjallaði mikið um það og meðal annars um bátinn Hauk Böðvarsson ÍS, sem þá var nýsmíðaður og er núna í slippnum í Njarðvík og heitir þar Valbjörn. Ég fékk send skilaboð þá skipstjóra frá Suðurnesjunum sem heitir Guðmundur Falk. Hann sagði ansi merkilega stutta sögu. Hún var á þá leið að þegar að Haukur Böðvarsson ÍS lá nýsmíðaður í Njarðvíkurhöfn nóttina eftir sjósetningu var hann á leið um borð í bátinn sem hann var á þá og hét Harpa RE. Harpa RE var þá á leið til loðnuveiða morgunin eftir. Sá þá Guðmundur að mikil slagsíða var kominn á Hauk Böðvarsson ÍS og sjór flaut inn á dekk bátsins og um lensportin og var báturinn að slíta af sér öll bönd. Guðmundur ók rakleiðis niður á slökkvistöð og sagði þeim þar að Haukur Böðvarsson ÍS væri að sökkva. Mætti dælubíll frá slökkviliðinu og mannskapur frá Vélsmiðjunni Herði sem smíðaði bátinn. Kom þá í ljós að botnloki hafði verið opinn, sem ekki var búið að tengja. Því má segja að snögg viðbrögð Guðmundar hafi bjargað bátnum. Engar þakkir fékk hann nú samt fyrir það en nú fær hann þær þakkir, í það minnsta frá mér.

Já og talandi áfram um Njarðvíkurhöfn, þá hafa þeir sem rúnta um þá bryggju tekið eftir grænum fallegum báti sem þar er. Það er Grundfirðingur SH sem Hólmgrímur Sigvaldson er búinn að kaupa en hann gerir út, eins og við vitum, Grímsnes GK,  Halldór Afa GK, Maron GK og kaupir fisk af Hraunsvík. Hólmgrímur mun fara með nýja bátinn í slipp í haust og mun hann þá fá fallega rauða litinn sem einkennir bátana hans og án efa mun hann taka þátt í netaveiðunum á vertíðinni 2020. 

Minni svo á að Vertíðaruppgjörið 2019-1969 er til sölu hjá mér í síma 774 3616.