Aðsent

Staðreyndum haldið til hlés
Föstudagur 6. mars 2020 kl. 15:07

Staðreyndum haldið til hlés

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar grein í Víkurfréttir um stöðuna á Suðunesjum. Hún auglýsir þar eftir aðgerðum og úrbótum í margvíslegum brýnum efnum. Hún getur þess ekki að allir þingmenn Suðurkjördæmis stóðu að þingsályktun um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum á yfirstandandi 150. þingi (samþykkt í júní 2019) um að fjölskipaður starfshópur ynni eins og hér kemur fram:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp fulltrúa sveitarfélaga á Suðurnesjum og fimm sérfræðinga úr forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti til að vinna tímasetta aðgerðaáætlun (mín feitl.) um hvernig efla megi þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum og mæta mikilli fólksfjölgun þar. Meðal þess sem hópurinn skal leggja til grundvallar aðgerðaáætluninni er mat á:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

a. samfélagslegum áhrifum fólksfjölgunar á svæðinu,

b. samsetningu íbúa og mismunandi þörfum þeirra með tilliti til stöðu, aldurs, móðurmáls o.fl.,

c. hvort fjárframlög til ríkisstofnana á svæðinu hafi fylgt þróun byggðamála og fólksfjölgun,

d. áhrifum niðursveiflu í ferðaþjónustu og færri flugferða um Keflavíkurflugvöll á sveitarfélögin á svæðinu.

Starfshópurinn skili skýrslu með niðurstöðum eigi síðar en 1. desember 2019. Forsætisráðherra kynni Alþingi niðurstöður starfshópsins.“

Kannski hefði formaður Viðreisnar mátt minnast á bindandi þingsályktunina í þessum pistli sínum. Hún kýs að gera það ekki.

Ari Trausti Guðmundsson.
Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi.