Aðsent

Skötumessan haldin í Miðgarði
Sunnudagur 30. júní 2019 kl. 14:50

Skötumessan haldin í Miðgarði

Miðvikudaginn 17. júlí verður Skötumessan enn og aftur haldinn í Garðinum. Borðhald hefst kl. 19 og að venju er boðið upp á glæsilegt hlaðborð af skötu, saltfiski, plokkfiski og meðlæti og rómuð skemmtidagskrá að venju flutt af fólki sem leggur okkur lið.

Skólamatur sér um matinn eins og áður og skemmtidagskráin samanstendur af hefðbundnum atriðum. Dói og Baldvin sjá um harmonikkuleik á meðan fólkið er að koma sér fyrir og síðan rekur hver dagskrárliðurinn sig af öðrum. Geimsteinar Suðurnesja, Davíð Már Guðmundsson og Óskar Ívarsson, taka nokkur lög eins og Olsenbræðurnir Erlingur og Svavar Helgasynir áður en Sigríður Á. Andersen, fv. ráðherra frá Móakoti í Garði, flytur ræðu kvöldsins. Það er von á góðu frá þeim kvenskörungi. Þá afhendum við styrkina sem við öll erum þátttakendur í og að lokum verða stuttir tónleikar þar sem Halldór Gunnar Fjallabróðir og Sverrir Bergman stórsöngvari skemmta Skötumessugestum. Þeir félagar harðneituðu að fá greiðslu fyrir að koma fram og leggja þannig stuðning sinn við gott málefni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Vilt þú verða einn af þeim?
Árlega mæta rúmlega 400 manns á Skötumessuna og borða til blessunar eins og dómkirkjupresturinn orðaði það svo skemmtilega við mig. Við leggjum öll saman í þetta verkefni og erum líka öll viðstödd þegar styrkirnir eru greiddir út í lok kvöldsins. Ég spyr því þig lesandi góður: Vilt þú ekki verða einn af þeim sem leggja fötluðum og þeim sem eru hjálpar þurfi lið? Vinnufélagar og kaffifélagar víða á Suðurnesjum, nú er tækifæri til þess og við erum öll í sama liðinu og finnum hvað þetta kvöld getur skipt miklu máli fyrir þá sem við styðjum.
Verð aðgöngumiða er 5.000 kr. Það hjálpar til að greiða aðganginn inn á reikning Skötumessunnar fyrir fram eins og okkar fólk er vant en reiknisnúmerið er; 0142-05-70506, kt. 580711-0650.

Nú er Skötumessan í fyrsta skipti haldin í sameiginlegu sveitarfélagi og því sérstakt tækifæri fyrir íbúa að gera Skötumessuna að sinni árlegu bæjarskemmtun, mæta vel og styðja við verkefni í heimabyggð í Suðurnesjabæ.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Gerðaskóla miðvikudaginn 17. júlí, mæta tímanlega og finna sér sæti og hlusta á harmonikkutóna frá Dóa og Baldvin fyrir kvöldverðinn.

Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra.
Helstu stuðningsaðilar Skötumessunnar eru; Fiskmarkaður Suðurnesja, Skólamatur ehf, Icelandair Cargo, Suðurnesjabær og fl.