Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Aðsent

Skilum árangrinum til bæjarbúa
Fimmtudagur 24. maí 2018 kl. 22:58

Skilum árangrinum til bæjarbúa

Fyrir fjórum árum kynntum við bæjarbúum nýja sýn í aðdraganda kosninganna, vildum móta samfélagið okkar í anda lýðræðis, gegnsæis og reka Reykjanesbæ á ábyrgan hátt. 
 
Við jukum áhrif íbúa á mótun bæjarins okkar. Á kjörtímabílinu voru haldnir 15 íbúafundir og íbúakosning var haldin að frumkvæða íbúa um deiliskipulag í Helguvík, sú fyrsta á landinu.
Við endurskoðuðum rekstur sveitarfélagsins og komum honum í lag. Fjárhagsleg staða bæjarins er öll önnur og sterkari nú.
 
Við settum skýr mörk á milli stjórnmálamanna og rekstrar bæjarins. Réðum ópólitískan bæjarstjóra,  tryggðum að allar ráðningar eru án afskipta stjórnmálamanna og gerðum stjórnsýsluna gegnsærri.
 
Við höfum stjórnað bænum okkar undanfarin fjögur ár á opnari og ábyrgari hátt en áður og okkur tókst að hlífa fjölskyldum bæjarins á erfiðum tímum með því t.d. að þrefalda  hvatagreiðslur, hækka styrki til íþróttafélaga og umönnunargreiðslur til dagforeldra. 
 
Samfélag í sókn
Tiltektin var drjúg og verkefnið stórt en með samstilltu átaki bæjarbúa og bæjarstjórnar tókst það. Nú getur uppbyggingin og sóknin hafist að fullu.
 
Nú er tími til að láta samfélagið njóta árangursins sem við höfum öll náð saman. Gott er að geta byrjað á því að skila árangrinum í ábyrgari rekstri bæjarins til fjölskyldanna og lækka útsvarið á næsta ári um 300 milljónir eins og ákveðið hefur verð.
 
Takk fyrir stuðninginn og þolinmæðina við endureisn bæjarins okkar. Við munum skila árangrinum til bæjarbúa - með ykkar hjálp. 
XS - Samfélag í sókn.
 
Friðjón Einarsson 
skipar 1. sæti S-lista Samfylkingar og óháðra
Public deli
Public deli